18. mars 2010

Ábyrgð sjóðfélaga vegna breytinga á tekjuskatti.

Um síðustu áramót tóku gildi breytingar á lögum um tekjuskatt og staðgreiðslu sem fela í sér þrepakerfi á tekjuskatti.

Tekjuskattur, að viðbættu 13,12% útsvari er sem hér segir:
37,22% af tekjum undir 200.000 kr. á mánuði.
40,12% af tekjum á bilinu 200.001 til 650.000 kr. á mánuði
46,12% af tekjum yfir 650.000 kr. á mánuði.

Við viljum benda sjóðfélögum á, að sá sem fær launagreiðslur frá fleiri launagreiðendum en lífeyrissjóðum, ber ábyrgð á að rétt innheimtuhlutfall sé notað við frádrátt staðgreiðslu.

Til baka í fréttir