Aðalfundur Sýnar hf. 2023
Aðalfundur Sýnar hf. fór fram föstudaginn 17. mars klukkan 10:00 í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík. Fundurinn var einnig rafrænn.
| Dagskrárliður | Lagt fram af | Afgreiðsla* |
|---|---|---|
| Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári | Stjórn | Til kynningar |
| Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingar | Stjórn | Samþykkt |
| Ákvörðun um hvernig skuli fara með afkomu félagsins á reikningsárinu 2022 | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga um lækkun hlutafjár með innlausn (ógildingu) eigin hluta félagsins í framhaldi af kaupum á eigin hlutum. | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins og um heimild til kaupa á eigin hlutum (sem getið verður í viðauka við samþykktirnar): | ||
| i) Breytingar á fyrirkomulagi boðunar aðal- og hluthafafunda | Stjórn/Gildi | Samþykkt** |
| ii) Að heimila félaginu kaup á eigin hlutum, sem verður viðauki við samþykktirnar | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga um stefnu um arðgreiðslur og/eða endurkaup eigin hluta | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga um starfskjarastefnu félagsins | Stjórn | Samþykkt |
| Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir komandi starfsár | Stjórn | Samþykkt |
| Kosning stjórnar félagsins | Sjálfkjörið | |
| Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd félagsins í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar | Sjálfkjörið | |
| Kosning endurskoðenda félagsins | Stjórn | Samþykkt |
**Breytingartillaga Gildis borin upp samhliða tillögu stjórnar og mælt með að kosið sé um hana breytta á þann hátt, sem enginn mótmælti. Samþykkt eins og Gildi lagði upp.