Aðalfundur Sýnar 2025
Aðalfundur Sýnar hf. árið 2025 var haldinn kl. 15:00 föstudaginn 14. mars. Fundurinn var rafrænn og honum streymt frá Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík.
| Dagskrárliður | Lagt fram af | Afgreiðsla* |
|---|---|---|
| Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári | Til kynningar | |
| Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til staðfestingar | Stjórn | Samþykkt |
| Ákvörðun um hvernig skuli fara með afkomu félagsins á reikningsárinu 2024 | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga um stefnu um arðgreiðslur og/eða endurkaup eigin hluta | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga um starfskjarastefnu félagsins | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum (sem getið verður í viðauka við samþykktir félagsins) | Stjórn | Samþykkt |
| Tilnefningarnefnd kynnir skýrslu sína og tillögur | Tilnefningarnefnd | Til kynningar |
| Kosning stjórnar félagsins | Sjálfkjörið | |
| Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd félagsins í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga stjórnar að endurskoðunarfirma félagsins | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd | Stjórn | Samþykkt |
| Tillaga Newsmith Capital um reglulega birtingu fjárfestingaráætlunar | Stjórn | Ekki kosið |
| Breytingartillaga stjórnar við tillögu Newsmith Capital um reglulega birtingu fjárfestingaráætlunar | Stjórn | Samþykkt |
*Afgreiðsla fulltrúa Gildis á fundinum. Niðurstaða fundar gæti verið önnur.